sudurnes.net
Mikilvægur sigur Keflvíkinga á Þór - Local Sudurnes
Keflvíkingar unnu mikilvægan sigur á Þór á Akureyri í kvöld, en með sigrinum blanda Keflvíkingar sér í toppbaráttu Inkasso-deildarinnar með 17 stig. Keflvíkingar byrjuðu leikinn af krafti og skoraði Sigurbergur Elísson fyrsta mark leiksins eftir sjö mínútna leik. Keflvíkingar bættu svo öðru marki við um miðjan fyrri hálfleikinn og var þar að verki Hörður Sveinsson. Þannig að hélst munurinn út fyrri hálfleik. Þórasarar minnkuðu muninn í 1-2 á 76. mínútu en Keflvíkingar náðu að halda því þannig til loka leiks og fengu afar mikilvæg þrjú stig í hús. Meira frá SuðurnesjumGríðarlega mikilvægur sigur hjá NjarðvíkVíðir á toppi þriðju deildar eftir stórsigur – Reynir og Þróttur töpuðuVíðir með fullt hús stiga eftir sigur á Einherja – Hafa aðeins fengið á sig eitt markMikilvægur sigur hjá NjarðvíkingumKeflavíkurhraðlestin óstöðvandi í Dominos-deildinniNjarðvík í undanúrslit LengjubikarsinsJafntefli hjá Keflavík og sigur hjá Grindavík í fyrsta leikKeflvíkingar heppnir að ná jafntefli gegn FjarðabyggðKeflvíkingar unnu verðskuldaðan sigur í LjónagryfjunniGrindavíkurstúlkur verða áfram í fyrstu deild eftir tap gegn ÍA