sudurnes.net
Margrét skoraði 8 mörk fyrir Grindavík - Einu marki frá meti Olgu Færsteh - Local Sudurnes
Margrét Albertsdóttir skoraði 8 mörk fyrir Grindavík í ótrúlegum leik sem fram fór á Grindavíkurvelli á laugardaginn þegar Grindavík tók á móti botnliði 1. deildar kvenna, Hvíta riddaranum. Lokatölur leiksins urðu 21-0 fyrir Grindavík sem gjörsamlega valtaði yfir Hvíta riddarann. Með sigrinum tyllti Grindavík sér aftur í toppsætið við hlið FH, en bæði lið eiga eftir að leika tvo leiki. Eins og tölurnar gefa til kynna voru yfirburðir Grindavíkur algjörir frá fyrstu mínútu, enda skoruðu þær mark á rúmlega 4 mínútna fresti. Eins og áður sagði skoraði Margrét Albertsdóttir 8 mörk í leiknum og Sashana Campell 5. Keflvíkingurinn Olga Fær­seth á þó markametið í 1. deild kvenna en hún skoraði 9 mörk í leik fyr­ir Kefla­vík gegn Stokks­eyri árið 1991. Grind­vík­inga vantaði líka eitt mark til að jafna marka­met – Stærsti sig­ur í 1. deild kvenna er 22:0 en þær töl­ur litu dags­ins ljós árið 2004 þegar Kefla­vík burstaði Ægi með þeirri marka­tölu. Meira frá SuðurnesjumÞróttur í góðri stöðu eftir 4-0 sigur gegn Hvíta RiddaranumFyrsta tap Njarðvíkinga – Víðir í fjórða sæti eftir sigur í markaleikGríðarlega mikilvægur sigur hjá NjarðvíkÖruggur sigur hjá Njarðvík gegn ÆgiJóhann Birnir og Jónas Guðni leggja skóna á hillunaVíðir á toppi þriðju deildar eftir stórsigur – Reynir og [...]