sudurnes.net
Már með fjögur Íslandsmet á örfáum dögum - Local Sudurnes
Már Gunnarsson hefur sett fjögur Íslandsmet á HM sem fram fer í London um þessar mundir. Már setti tvö Íslandsmet á þriðjudag, bæði í 100 metra baksundi og vann til bronsverðlauna í kjölfarið. Fyrr á mótinu hafði hann sett eitt og það fjórða féll í dag þegar hann synti 50 metra flugsund á 34,42 sekúndum í 200 metra fjórsundi. Greinarnar fjórar synti Már á 2:41,94 mínútum og hafnaði hann því í 10. sæti en það dugði ekki til að komast í úrslit. Már sem er aðeins tvítugur að aldri og keppir í flokki S11 eða alblindra. Meira frá SuðurnesjumEnn bætir Már Íslandsmet – Keppir til úrslita í 100 metra flugsundiMár nældi í bronsverðlaun á HM – Bætti Íslandsmet tvisvar sama dagMár setti 10 Íslandsmet og vann til bronsverðlauna – Fer beint til Póllands og heldur tónleikaBættu 14 ára gamalt landsmet í boðsundi á HMArnar Helgi með tvö Íslandsmet í Doha – MyndbandKR-ingar fóru létt með slaka KeflvíkingaSuðurnesjaliðin með sigra – Tvíframlengdur spennutryllir á SauðárkrókiElvar Már með flest stig að meðaltali í undankeppni HMLangþráður Njarðvíkursigur – Tvö mörk í uppbótartímaElvar Már í sögubækurnar – Leikmaður ársins annað árið í röð