sudurnes.net
Maltbikarhelgin framundan - Allir leikir í beinni á RÚV - Local Sudurnes
Maltbikarhelgin 2017, fer fram um helgina, en þá fara fram undanúrslita- og úrslitaleikir í bikarkeppni KKÍ, Maltbikarnum. Leikið verður í Laugardalshöll og verður umgjörðin í Höllinni glæslileg frá miðvikudegi til sunnudags þar sem verður leikið við bestu aðstæður í öllum flokkum. Átta leikir verða sýndirí beinni útsendingu á RÚV, auk þess sem fimm yngri flokka leikir verða sýndir beint á ruv.is á netinu. Suðurnesjaliðin eiga nokkra leiki um helgina, en dagskránna má sjá hér fyrir neðan: Miðvikudagur 8. febrúar Kl. 17:00 Undanúrslit kvenna: Keflavík-Haukar, sýndur á RÚV Kl. 20:00 Undanúrslit kvenna: Skallagrímur-Snæfell, sýndur á RÚV2 Fimmtudagur 9. febrúar Kl. 17:00 Undanúrslit karla: Valur-KR, sýndur á RÚV Kl. 20:00 Undanúrslit karla: Þór Þ.-Grindavík, sýndur á RÚV2 Föstudagur 10. febrúar Kl. 18:00 10. flokkur stúlkna Njarðvík-Keflavík, sýndur á ruv.is Kl. 20:00 Drengjaflokkur KR-Stjarnan, sýndur á ruv.is Laugardagur 11. febrúar Kl. 13:30 Úrslitaleikur kvenna, sýndur á RÚV Kl. 16:30 Úrslitaleikur karla, sýndur á RÚV Sunnudagur 12. febrúar Kl. 09:45 9. flokkur drengja Valur – Vestri, sýndur á ruv.is Kl. 11:45 10. flokkur drengja Stjarnan-Þór Akureyri, sýndur á ruv.is Kl. 13:45 Unglingaflokkur kvenna Keflavík-Haukar, sýndur á RÚV Kl. 16:00 Unglingaflokkur karla KR-Tindastóll, sýndur á RÚV Kl. 18:15 9. flokkur stúlkna Grindavík-Keflavík, sýndur á ruv.is Meira frá [...]