Nýjast á Local Suðurnes

Liverpool Open 2016 á Húsatóftarvelli á laugardag

Það má búast við miklu fjöri á Húsatóftavelli í Grindavík á laugardag og verður völlurinn væntanlega rauðlitaður þegar Golfmót Liverpoolklúbbsins “Liverpool Open 2016” verður haldið á þessum glæsilega golfvelli Grindvíkinga.

Meðlimir Liverpoolklúbbsins fá forgang í mótið en þann 29. júlí var opnað fyrir skráningar á golf.is fyrir almenning.  Einnig er hægt að skrá sig með því að senda póst á golf@liverpool.is

Ræst verður út af öllum teigum klukkan 10:00 og eiga keppendur að mæta klukkan 9:00.

Mótið er punktakeppni með forgjöf þar sem hámarksforgjöf er 24 hjá körlum en 28 hjá konum. Einungis þeir sem hafa löglega skráða forgjöf samkvæmt GSÍ geta unnið til verðlauna.

Mótsgjaldið er 5.900.-  innifalið í mótsgjaldi er teiggjöf og lambalæri að hætti hússins að móti loknu.

Glæsileg verðlaun verð í boði fyrir þá sem standa sig best á mótin, þá verða nándarverðlaun veitt á öllum par 3 brautum auk verðlauna fyrir lengsta drive.