Nýjast á Local Suðurnes

Liverpool Open 2015 á Húsatóftarvelli í águst

Húsatóftavöllur verður rauðlitaður þegar Golfmót Liverpoolklúbbsins “Liverpool Open 2015” verður haldið á hinum glæsilega golfvelli  Grindvíkinga  þann 15. ágúst nk. Meðlimir Liverpoolklúbbsins fá forgang í mótið.  4. Ágúst  verður opnað fyrir skráningar á golf.is fyrir almenning – Þetta kemur fram í tilkynningu frá Liverpool klúbbnum.

Þar kemur einnig fram að ræst verði út af öllum teigum klukkan 13:00 og eiga keppendur því að mæta klukkan 12:00. Mótið er punktakeppni með forgjöf þar sem hámarksforgjöf er 24 hjá körlum en 28 hjá konum. Einungis þeir sem hafa löglega skráða forgjöf samkvæmt GSÍ geta unnið til verðlauna.

Mótsgjaldið er 5800 kr., innifalið í mótsgjaldi teiggjöf og lambalæris hlaðborð að hætti hússins að móti loknu.

– Glæsileg verðlaun
– Nándarverðlaun á öllum par 3 brautum
– Lengsta drive

Ferðavinningur fyrir einn dreginn út úr skorkortum, ásamt fjölda skorkortsvinninga ATH aðeins viðstaddir geta unnið til verðlauna. Sami aðili getur ekki unnið til verðlauna í höggleik og punktakeppni.

Að sjálfsögðu fá meðlimir Liverpoolklúbbsins forgang í mótið og geta skráð sig með því að senda póst á golf@liverpool.is fyrir 4. ágúst.  Eftir það verður opnað fyrir skráningar á golf.is. Í fyrra fylltist mótið á met tíma og því um að gera að hafa hraðar hendur.

Þá er sérstaklega tekið fram í tilkynningunnia að skylda sé að vera vel merktur Liverpool Football Club í mótinu, mótsstjórn er heimilt að vísa mönnum frá séu menn ómerktir eða “illa” merktir.