Nýjast á Local Suðurnes

Leikur Njarðvíkur og Stjörnunnar fer fram þrátt fyrir rýmingu

Leikur Njarðvíkur og Stjörnunnar í Domino’s deild karla mun fara fram á tilsettum tíma klukkan 20:15 í kvöld þrátt fyrir rýmingaraðgerðir í Njarðvík í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá körfuknattleiksdeild Njarðvíkur.

Íþróttahús Njarðvíkur er í hverfinu sem rýmingin náði til, en vegna rýmingarinnar, sem er öryggisráðstöfun, gætu bílastæði í grennd við Njarðtaks-gryfjuna verið lokuð og gengið verður inn á leikinn um kjallara að sunnaverðu húsinu.

Njarðvíkingar eru hvattir til þess að fara fótgangandi á leikinn á meðan stuðningsmenn Stjörnunnar eru beðnir að hafa í huga að erfitt gæti verið að finna bílastæði í nánd við íþróttahúsið.