Nýjast á Local Suðurnes

Leikmannasamningar tryggja kylfingum bestu mögulegu aðstæður til æfinga

Golfkúbbur Suðurnesja hefur gert leikmannasamninga við sjö kylfinga, en þetta er í fyrsta sinn sem GS gerir slíka samninga við kylfinga. Þeir sjö kylfingar sem þegar hafa skrifað undir samninga við klúbbinn eru Laufey Jóna Jónsdóttir, Zuzanna Korpak, Kinga Korpak, Kristján Jökull Marínósson, Geirmundur Ingi Eiríksson, Björgvin Sigmundsson og Guðmundur Rúnar Hallgrímsson.

Þá mun áttundi kylfingurinn Karen Guðnadóttir bætast í þennan hóp síðar, hún er búsett erlendis en mun keppa á Íslandi í sumar.

Leikmannasamningarnir kveða meðal annars á um að kylfingurinn keppi undir merkjum GS á samningstímanum, sé fyrirmynd annara utan vallar sem innan og aðstoði við æfingar yngri hópa. Á móti leitast GS meðal annars við að sjá kylfingunum fyrir bestri mögulegu aðstöðu til æfinga og einkatímum hjá íþróttastjóra, að auki styrkir GS kylfingana með greiðslu mótsgjalda og ýmsum búnaði til keppni.

“Þetta er í fyrsta sinn sem Golfklúbbur Suðurnsesja gerir leikmannasamninga við sína keppendur og er það von stjórnar að þessir samningar leggi grunn að farsælu keppnistímabili Golfklúbbsins og kylfinga þess,” segir í tilkynningu frá klúbbnum.