Leikið á sumarflötum á Opna Nóa Siríusmótinu í Leiru
Fyrsta golfmót ársins fer fram á Hólmsvelli í Leiru á laugardag. Um er að ræða Opna Nóa Siríus mótið og er búist við að 112 þátttakendur skrái sig til leiks, en það er sá fjöldi sem getur tekið þátt.
Leikið verður af sumarteigum og inn á sumarflatir, sem er einsdæmi á þessum árstíma, en einmuna veðurlíða undanfarin misseri gerir mönnum kleift að halda mótið með þessum hætti.