sudurnes.net
Kvennalið Njarðvíkur leikur í Dominos-deildinni á næsta tímabili - Local Sudurnes
Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur hefur þegið boð KKÍ um að leika í Dominos deildinni á komandi tímabili. Síðustu tvö tímabil hefur kvennalið Njarðvíkur leikið í 1. deild en verið í toppbaráttu bæði árin. „Það var aldrei spurning um að taka sætið þegar KKÍ hafði samband við okkur. Stefnan hefur alltaf verið að koma liðinu aftur upp. Við erum með ungt og efnilegt lið og teljum þær fullfærar að spila í efstu deild. Auk þess er leikmannamarkaðurinn opinn og munum við reyna að styrkja liðið á næstu dögum. Ég ræddi stuttlega við stelpurnar í gær og heyrði strax á þeim að þær voru klárar í þetta verkefni. Það er því spennandi tímabil framundan hjá Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur. „ Segir Róbert Þór Guðnason varaformaður KKD. Njarðvík. Meira frá SuðurnesjumKeflavík fær Þór Þ. í heimsókn og Grindavík mætir ÍR í MaltbikarnumBjörn yfirgefur NjarðvíkÍþróttafólk ársins: Þröstur og Sunneva í Reykjanesbæ – Alexander og Petrúnella í GrindavíkKörfuboltatímabilið blásið af – Mörg félög lenda í fjárhagsvandaGrindvíkingar fá nýjan markvörðKeflvíkingar í öðru sæti B-deildar Fótbolta.net mótsinsPálína gengur til liðs við HaukaGrindvíkingar í öðru sæti á Íslandsmótinu í pílukastiHaukur Helgi til NjarðvíkurBikarhátíð KKÍ hefst á morgun með undanúrslitaleik Grindavíkur og Fjölnis