sudurnes.net
Komnar á beinu brautina undir stjórn Sverris Þórs - Local Sudurnes
Keflavíkurstúlkur léku leikmenn Stjörnunnar grátt í leik liðanna í TM-Höllinni í Keflavík i gærkvöldi, Keflavíkurstúlkur sigu framúr á lokamínútum leiksins eftir að hafa verið undir nær allan leikinn og höfðu fimm stiga sigur, 53-48. Liðið virðist því vera komið á beinu brautina undir stjórn Sverris Þórs Sverrissonar en liðið situr nú í þriðja sæti Dominos-deildarinnar með 16 stig eftir að hafa unnið síðustu tvo leiki sína með nýjan þjálfara í brúnni. Melissa Zorning skoraði mest hjá Keflavík eða 17 stig og Marín Lauf­ey Davíðsdótt­ir skoraði 10 stig, auk þess sem hún tók ​9 frá­köst. Þá lögðu Grindavíkurstúlkur botnlið Ham­ars frá Hvera­gerði örugglega í Mustad-höllinni í Grindavík, lokatölur leiksins urðu 79-62 og skoraði Whitney Michelle Frazier af 19 af stigum liðsins og Sigrún Sjöfn Ámunda­dótt­ir skoraði 16 stig, tók ​10 frá­köst auk þess að eiga ​5 stoðsend­ing­ar. Grindvíkingar eru í fjórða sæti Dominos-deildarinnar með 14 stig eftir 14 leiki. Meira frá SuðurnesjumGrindavíkurstúlkur í góðri stöðu eftir sigur á HaukumGrindavík lagði Hauka í spennuleikHaukar völtuðu yfir GrindavíkNjarðvík og Grindavík með sigra í Dominos-deildinniGrindavíkurstúlkur komnar í bikarúrslitin – Keflavík úr leikDominos-deildin: Sigur hjá Keflvíkingum – Tap hjá NjarðvíkingumSuðurnesjaliðin í basli í Dominosdeildinni – Vandræði Njarðvíkinga hófust á grillinuDominos-deildin: Njarðvík og Grindavík töpuðuÖruggt hjá Keflavík gegn FjölniStefan Bonneau átti fína spretti – [...]