Kolbrún Júlía í lokahóp landsliðsins í hópfimleikum – Keppir á EM í Slóveníu
Lokahópur landsliðs Íslands í hópfimleikum sem tekur þátt í Evrópumeistaramótinu sem fram fer í Maribor í Slóveníu 10. – 16. október, hefur verið tilkynntur. Um er að ræða 12 sem skipa kvennalandsliðið og 16 liðsmenn sem skipa blandaða sveit karla og kvenna. Fimleikadeild Keflavíkur á einn fulltrúa í landsliðinu að þessu sinni, en Kolbrún Júlía Guðfinnsdóttir Newman sem hefur æft með liðinu undanfarið komst í lokahópinn.
Evrópumeistaramótið í hópfimleikum fór síðast fram hér á landi haustið 2014 og þá hreppti kvennalandslið Íslands silfurverðlaun.
Blandað landslið Íslands.
1. Arnar Freyr Yngvason, Gerplu
2. Ásmundur Óskar Ásmundsson, Gerplu
3. Bára Björt Stefánsdóttir, Gerplu
4. Einar Ingi Eyþórsson, Stjörnunni
5. Einar Karelsson, Gerplu
6. Eysteinn Máni Oddsson, Selfossi
7. Heiða Rut Halldórsdóttir, Gerplu
8. Kolbrún J. Guðfinnsd. Newman, Keflavík
9. Kolbrún Sara Magnúsdóttir, Gerplu
10. Konráð Oddgeir Jóhannsson, Selfossi
11. Lovísa Snorradóttir Sandholt, Gerplu
12. Margrét Lúðvígsdóttir, Selfossi
13. Norma Dögg Róbertsdóttir, Björk
14. Rikharð Atli Oddsson, Selfossi
15. Sindri Steinn Davíðsson Diego, Ármanni
16. Valdís Ellen Kristjánsdóttir, Stjörnunni
Þjálfarar: Henrik Pilgaard, Kristinn Guðlaugsson, Rakel Másdóttir og Þórdís Ólafsdóttir.