sudurnes.net
Keflvíkingum spáð Pepsí-deildarsæti - Grindvíkingum spáð falli - Local Sudurnes
Í há­deg­inu var kunn­gerð spá þjálf­ara, fyr­irliða og forráðamanna liðanna í Inkasso-deildinni en mótið hefst á morgun. Gangi spá­in eft­ir leika Kefla­vík og Fylk­ir í úr­vals­deild­inni á næstu leiktíð en það kem­ur í hlut Leikn­is frá Fá­skrúðsfirði og Gróttu að falla úr deild­inni. Deild­in hefst annað kvöld með þrem­ur leikj­um. Leikn­ir R. tek­ur á móti Kefla­vík, HK og Fram eig­ast við í Kórn­um og á Sel­fossi leika heima­menn á móti nýliðum ÍR. Spá­in: 1. Fylk­ir 398 2. Kefla­vík 394 3. Þrótt­ur 352 4. Þór 288 5. Sel­foss 278 6. Leikn­ir R 246 7. Fram 231 8. Hauk­ar 215 9. HK 158 10. ÍR 118 11. Leikn­ir F 78 12. Grótta 52 Þá var á dögunum einnig birt spá þjálfara, fyrirliða og formanna félaga sem leika í Pepsídeildinni, þar er Grindvíkingum spáð falli, en niðurstöðurnar voru eftirfarandi: Spá­in: 1. FH – 399 stig 2. KR – 379 stig 3. Val­ur – 375 stig 4. Stjarn­an – 320 stig 5. Breiðablik – 295 stig 6. Fjöln­ir – 228 stig 7. KA – 197 stig 8. Vík­ing­ur R. – 192 stig 9. ÍBV – 144 stig 10. ÍA – 110 stig 11. Grinda­vík – 103 stig 12. Vík­ing­ur Ó. – 66 stig Meira frá [...]