Keflvíkingum spáð Pepsí-deildarsæti – Grindvíkingum spáð falli
Í hádeginu var kunngerð spá þjálfara, fyrirliða og forráðamanna liðanna í Inkasso-deildinni en mótið hefst á morgun. Gangi spáin eftir leika Keflavík og Fylkir í úrvalsdeildinni á næstu leiktíð en það kemur í hlut Leiknis frá Fáskrúðsfirði og Gróttu að falla úr deildinni.
Deildin hefst annað kvöld með þremur leikjum. Leiknir R. tekur á móti Keflavík, HK og Fram eigast við í Kórnum og á Selfossi leika heimamenn á móti nýliðum ÍR.
Spáin:
1. Fylkir 398
2. Keflavík 394
3. Þróttur 352
4. Þór 288
5. Selfoss 278
6. Leiknir R 246
7. Fram 231
8. Haukar 215
9. HK 158
10. ÍR 118
11. Leiknir F 78
12. Grótta 52
Þá var á dögunum einnig birt spá þjálfara, fyrirliða og formanna félaga sem leika í Pepsídeildinni, þar er Grindvíkingum spáð falli, en niðurstöðurnar voru eftirfarandi:
Spáin:
1. FH – 399 stig
2. KR – 379 stig
3. Valur – 375 stig
4. Stjarnan – 320 stig
5. Breiðablik – 295 stig
6. Fjölnir – 228 stig
7. KA – 197 stig
8. Víkingur R. – 192 stig
9. ÍBV – 144 stig
10. ÍA – 110 stig
11. Grindavík – 103 stig
12. Víkingur Ó. – 66 stig