Keflvíkingar styrkja varnarlínuna
Farid Zato, landsliðsmaður Tógó í knattspyrnu sem lék með KR á síðasta tímabili, er genginn í raðir Keflavíkur. Það er mbl.is sem greinir frá.
Zato er 23ja ára gamal varnarmaður sem kemur væntanlega til með að styrkja Keflavíkurliðið töluvert en liðið situr á botni Pepsí-deildarinnar með aðeins fimm stig eftir 11 leiki en liðið hefur fengið á sig 24 mörk í þessum 11 leikjum.
Fyrir skömmu gekk bandaríski framherjinn Chukwudi Chijindu til liðs við liðið og munu þessir tveir væntanlega spila næsta leik sem er gegn Víkingum á útivelli.