sudurnes.net
Keflvíkingar semja við unga og efnilega knattspyrnumenn - Local Sudurnes
Anton Freyr Hauksson hefur skrifað undir nýjan samning við Keflavík. Samningurinn er til þriggja ára og gildir því út keppnistímabilið 2018. Anton Freyr er 19 ára gamall varnarmaður og á að baki einn bikarleik með Keflavík og nokkra leiki í deildarbikarnum. Hann lék sem lánsmaður með Njarðvík síðasta sumar og lék þá 19 leiki í 2. deildinni. Anton Freyr hefur leikið með U-19 og U-17 ára landsliðunum. Ási Þórhallsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við Keflavík. Ási er tvítugur varnarmaður sem lék með yngri flokkum Keflavíkur en hann hefur einnig leikið með Njarðvík og FH. Síðasta sumar lék Ási með Sindra og spilaði þá 18 leiki í 2. deildinni og skoraði tvö mörk. Meira frá SuðurnesjumBræðurnir Anton Freyr og Gunnólfur Björgvin semja til þriggja áraGóður árangur Suðurnesjamanna í akstursíþróttum um helgina – Myndir!Sveindís fer í BreiðablikGlæsileg aðstaða fyrir yngstu kynslóðina í Krakkalandi – Myndir!Ljósanæturhlaup Lífsstíls í kvöldToni skaut sér í átta liða úrslitTheodór Íslandsmeistari fjórða árið í röðRafn Markús og Snorri Már þjálfa NjarðvíkingaÚlfur Blandon tekur við Þrótti VogumKeflavík nálgast Pepsí-deildina – Ótrúlegur endurkomusigur gegn ÍR