Keflvíkingar næla í fyrrverandi leikmann L.A. Lakers
Karlalið Keflavíkur í körfuknattleik hefur gangð frá samningum við fyrrum leikmann NBA-liðsins LA Lakers samkvæmt frétt mbl.is.
Leikmaðurinn sem um ræðir heitir Chu Maduabum en hann var valinn í nýliðavali af Lakers árið 2011.
Hann skipti þó fljótlega yfir til Denver Nuggets en fékk ekki tækifæri í deildinni. Maduabum er 2,07 sentímetrar á hæð og spilar í stöðu miðherja.
Maduabum lék á síðustu leiktíð í Eistlandi og skoraði 7,6 stig að meðaltali í leik og tók 5.1 frákast.