Keflvíkingar komnir í sumarfrí
KR lagði Keflavík að velli í þriðja einvígisleik liðanna í átta liða úrslitum um Íslandsmeistaratitil karla í körfuknattleik, lokatölur 64-85, en leikið var í Keflavík.
Keflvíkingar héldu í við öfluga KR-inga allt fram í þriðja leikhluta en þá náðu KR-ingar tíu stiga forskoti sem Keflvíkingar náðu ekki að vinna upp.
Michael Craion var langbestur Keflvíkinga í kvöld, skoraði 26 stig og tók 11 fráköst. Mindaugas Kacinas skoraði 13 stig og Hörður Axel Vilhjálmsson 8.