Keflvíkingar halda montréttinum – Lögðu Njarðvík í Maltbikarnum
Keflvíkingar halda montréttinum í körfunni, en þeir eru komnir áfram í 16 liða úrslit Maltbikarsins eftir að hafa slegið út nágranna sína úr Njarðvík í skemmtilegum leik sem fram fór í TM-Höllinni í kvöld.
Leikurinn í kvöld stórskemmtilegur á að horfa, en Njarðvíkingar hófu leikinn af krafti á meðan besti leikmaður Keflvíkinga í vetur, Amin Sevens, lenti í villuvandræðum, en hann fékk sína þriðju villu snemma í leiknum. Njarðvíkingar leiddu með 15 stigum í hálfleik, eftir góðan kafla um miðjan hálfleikinn, þar sem hvert þriggja stiga skotið af öðru rataði ofan í körfu heimamanna.
Keflvíkingar komu sterkir til leiks í síðari hálfleik og þá sérstaklega varnarlega og voru snöggir að ná þessum mun niður og komast yfir. Lokatölurnar í TM-Höllinni í Keflavík 97-91 og Keflvíkingar komnir áfram í bikarnum.
Reggie Dupree var stigahæstur Keflvíkinga með 28 stig. Stefan Bonneau skoraði 27 stig fyrir Njarðvík.