sudurnes.net
Keflvíkingar fá fyrrum NBA leikmann - Myndband! - Local Sudurnes
Keflavík hefur samið við bandarískan leikmann fyrir átökin í Dominos deild karla. Sá heitir Stanley Robinson og er 29 ára, 206 cm framherji, sem hefur meðal annars staldrað hjá NBA-deildarliði Orlando Magic. Robinson var valinn í annarri umferð NBA nýliðavalsins árið 2010 af Orlando Magic og gerðu þeir eins árs samning við hann. Hjá þeim náði hann hinsvegar ekki að komast að. Þaðan fór hann til Rio Grande Valley Vipers og síðan Iowa Energy í NBA G deildinni þar sem hann lék tímabilið 2011-12, segir á vef Karfan.is, en þar má finna frekari upplýsingar um leikmanninn. Fyrir var Keflavík með bandaríkjamanninn Cameron Forte sem erlendan leikmann í liði sínu, en hann mun ekki verða með liðinu áfram. Meira frá SuðurnesjumTap hjá Keflavík en sigur hjá NjarðvíkKeflvíkingar skipta um erlendan leikmann – Myndband!Keflavík úr leik og áfram í MaltbikarnumSuðurnesjaliðin í Dominos-deildinni: Tveir sigrar og eitt tap – Logi í miklu stuðiÖruggt hjá Keflavík gegn FjölniHoverboard og lukkutröll í aðalhlutverki í ótrúlegri troðslu Aaron Gordon – Myndband!Ragnheiður Sara fer rólega af stað á Heimsleikunum í CrossFitRagnheiði Söru spáð góðu gengi á heimsleikunum í CrossfitHrund og Jón Axel íþróttafólk GrindavíkurGrindvíkingar fá öflugan kana – Lék með Pheonix Suns í sumardeildinni