Nýjast á Local Suðurnes

Keflavíkurstúlkur með sigur í fyrsta mótsleik ársins

Keflavíkurstúlkur spiluðu í kvöld fyrsta leik sinn í Faxaflóamótinu í ár gegn Skínanda, sem er systurfélag Stjörnunnar úr Garðabæ. Úrslitin setja Keflavíkurstúlkur í annað sæti B-riðils.

Eftir markalausan fyrri hálfleik komu Keflavíkurstúlkur ákveðnar inn í síðari hálfleikinn og settu fyrsta mark leiksins strax á 2 mínútu hálfleiksins. Markið gerði Anita Lind Daníelsdóttir með enn einum þrumufleygnum rétt utan vítateigs. Keflavík komst svo í 2 – 0 á 56 mín. eftir glæsilega hornspyrnu Anitu Lindar sem hafði viðkomu í varnarmanni Skínanda og skrifast sem sjálfsmark. Þrátt fyrir fjölmörg marktækifæri heimastúlkna og misnotað víti, skoraði Keflavík ekki fleiri mörk og endaði leikurinn því 2 – 0.

Næsti leikur stúlknanna í Faxaflóamótinu verður föstudaginn 5. febrúar gegn Hvíta Riddaranum. Í millitíðinni spila stúlkurnar æfingaleik gegn Pepsi deildar liði ÍBV, leikurinn verður í Reykjaneshöll föstudaginn 29. janúar kl. 20:30.