Keflavíkurhraðlestin óstöðvandi í Dominos-deildinni
Keflvíkingar eru enn taplausir og á toppnum í Dominos-deildinni í körfuknattleik eftir góðan sigur á KR-ingum í TM-höllinni í kvöld, 89-81.
Fyrri hálfleikur var jafn og spennandi þó Keflvíkingar hefðu jafnan forystuna, þeir leiddu eftir fyrsta leikhluta 30-25. Leikurinn var svo í járnum í þeim næsta og staðan í hálfleik var jöfn, 47-47.
Í þriðja hluta náðu KR-ingar betri tökum á sínum leik, á meðan aðeins dró af Keflvíkingum og voru það KR-ingar sem höfðu forystuna eftir þriðja leiklutann, 65:68.
Jafnt var á öllum tölum í fjórða leikhluta, þar til að Keflvíkingar sigu fram úr á lokamínútunum og höfðu sigur, 89-81.
Earl Brown Jr. var sterkur að vanda, skoraði 24 stig, tók 15 fráköst og átti 6 stoðsendingar auk þess sem hann vaði þrjú skot. Reggie Dupree skoraði 21 stig og Magnús Þór Gunnarsson 12.
Keflvíkingar sitja því enn á toppnum eftir sjö umferðir með fullt hús stiga eða 14, KR-ingar koma næstir með 10 og Njarðvíkingar verma þriðja sætið, einnig með 10 stig.