Nýjast á Local Suðurnes

Keflavík og Grindavík töpuðu

Afleit byrjun Grindavíkinga gegn Stjörnunni í Dom­in­os-deild­ karla í körfuknatt­leik gerði útslagið þegar liðið tapaði með 10 stiga mun, 88-78. Grindvíkingar skoruðu aðeins átta stig í fyrsta leikhluta, en náðu sér á strik þegar líða tók á leikinn, en það dugði ekki til.

Rashad Whack skoraði 29 stig fyrir Grindavík, Ingvi Þór Guðmunds­son 19 og Ólaf­ur Ólafs­son 14.

Keflvíkingar voru langt frá sínu besta þegar þeir tóku á móti KR-ingum í TM-höllinni í kvöld. Liðið tapaði 85-102, en Keflvíkingar halda þó öðru sæti deildarinnar um sinn.

Stanley Earl Robin­son kom vel út hjá Keflvíkingu, en hann var þeirra stigahæstur með 17 stig, en auk þess tók hann ​9 frá­köst, Guðmund­ur Jóns­son og Ragn­ar Örn Braga­son komu næstir með 14 stig hvor.

Ekkert stig skilaði sér því til Suðurnesja í 8. umferðinni, en Njarðvíkingar töpuðu fyrr í dag gegn Haukum.