Keflavík nálgast Pepsí-deildina – Ótrúlegur endurkomusigur gegn ÍR
Keflavík sigraði ÍR, í kvöld, með þremur mörkum gegn tveimur á Nettóvellinum í Keflavík í 18. umferð Inkasso-deildarinnar.
Keflvíkingar komust yfir með marki frá Adam Árna Róbertssyni, en ÍR-ingar skorðu hins vegar næstu tvö mörk. Lítið benti til þess að Keflvíkingar færu með nokkuð úr leiknum fyrr en Jeppe Hansen jafnaði fyrir Keflavík. Það var svo Leonard Sigurðsson sem skoraði sigurmarkið undir lok leiksins eftir varnarmistök heimamanna.
Keflvíkingar eru þar með komnir með 37 stig og fjögurra stiga forskot á næsta lið í deildinni þegar fjórar umferðir eru eftir.