sudurnes.net
Keflavík lagði Íslandsmeistara FH - Komnir í undanúrslit Lengjubikars - Local Sudurnes
Fyrstudeildarlið Keflavíkur er komið í undanúrslit Lengjubikarsins eftir sigur á Íslandsmeisturum FH í Reykjaneshöllinni í kvöld. Markalaust var eftir venjulegan leiktíma og var því farið beint í vítaspyrnukeppni. Þar reyndust heimamenn sterkari þar sem þeir nýttu allar fjórar spyrnur sínar en þeir Þórarinn Ingi Valdimarsson og Jonathan Hendrickx klúðruðu sínum spyrnum. Keflavík því komið í undanúrslit ásamt KR og Víkingi R. en Breiðablik og Valur mætast í síðasta leik 8-liða úrslitanna í næstu viku. Hægt er að sjá lista yfir markaskorara á fotbolti.net Meira frá SuðurnesjumÞrír erlendir leikmenn til ReynisGlenn tekur við KeflavíkNjarðvík á toppinn eftir sigur í grannaslagKeflvíkingar komnir í undanúrslitin eftir sigur á Njarðvík bDómaramistök á lokasekúndum seinni framlengingar – Sjáðu atvikið!Njarðvíkingar spenntir fyrir næsta tímabiliSigur hjá Þrótti í fyrsta leikKeflavík upp í Pepsi-MaxSigurður Ragnar verður yfirmaður knattspyrnumálaNjarðvíkurstúlkur í úrslit Maltbikarsins