Keflavík fallið úr PepsiMax deildinni
Keflavík er fallið úr PepsiMax-deild kvenna, en liðið átti fræðilegan möguleika á að halda sér uppi fyrir leiki dagsins.
Liðið gerði svo sannarlegga sitt í dag og lagði HK/Víking að velli, 4-1. Önnur úrslit þurftu þó einnig að falla með Keflvíkingum í dag, en það gerðist ekki og er liðið því fallið.