Nýjast á Local Suðurnes

Karen og Halldór íþróttafólk UMFN

Karen Mist Arngeirsdóttir sundkona og Halldór Jens Vilhjálmsson, kraftlyftingamaður voru kjörin íþróttafólk UMFN 2019 í hófi þann 29. Desember þar sem íþróttafólk allra deilda var heiðrað.

Við sama tækifæri afhenti varaformaður UMFN Einara Lilja Kristjánsdóttir formanni körfuknattleiksdeildar UMFN Kristínu Örlygsdóttur gjafabréf að fjárhæð kr. 250.000 í tilefni af 50 ára afmæli deildarinnar.

Annars voru íþróttamenn deilda valin eins og segir hér að neðan:

 

Íþróttakona UMFN 2019 Karen Mist Arngeirsdóttir

Íþróttamaður  UMFN 2019 Halldór Jens Vilhjálmsson

Heiðrún Fjóla Pálsdóttir júdókona

Ingólfur Rögnvaldsson júdómaður

Heiðrún Fjóla Pálsdóttir glímukona

Guðmundur Stefán Gunnarsson glímumaður

Vilborg Jónsdóttir körfuknattleikskona

Elvar Már Friðriksson körfuknattleiksmaður

Atli Geir Gunnarsson knattspyrnumaður

Elísa Sveinsdóttir kraftlyftingarkona

Halldór Jens Vilhjálmsson kraftlyftingarmaður

Aþena Eir Jónsdóttir lyftingarkona (ólymp.lyftingar)

Emil Ragnar Ægisson lyftingarm. (ólymp.lyftingar)

Karen Mist Arngeirsdóttir sundkona

Fannar Snævar Hauksson sundmaður

Guðlaug Sveinsdóttir þríþrautarkona

Jón Oddur Guðmundsson þríþrautarmaður