Nýjast á Local Suðurnes

Jón Axel valinn í úrvalslið Evrópumóts U20

Grindvíkingurinn Jón Axel Guðmundsson var var valinn í fimm manna úrvalslið B-deildar Evrópukeppni tuttugu ára landsliða sem lauk í Grikklandi í gærkvöld. Íslenska liðið lenti í öðru sæti mótsins eftir að hafa tapað naumlega gegn Svartfjallalandi eftir framlengdan úrslitaleik, 78-76.

Jón Axel var með 16,9 stig, 8,4 fráköst og 4,4 stoðsendingar að meðaltali í leik. Hann var með 23 stig, 13 fráköst og 4 stoðsendingar í úrslitaleiknum. Njarðvíkingurinn Kristinn Pálsson átti einnig skínandi leik á Evrópumótinu, hann gerði 8,9 stig að meðaltali í leik og tók 6 fráköst.