sudurnes.net
Jóhann Birnir og Hólmar áfram hjá Keflavík - Local Sudurnes
Knattspyrnudeild Keflavíkur hefur samið við fimm leikmenn, þrjá unga úr 2. flokki auk tveggja eldri. Þeir sem voru að endurnýja samning sinn við Keflavík eru þeir Jóhann Birnir Guðmundsson og Hólmar Örn Rúnarsson. Jóhann á langan feril að baki og var að gera sinn níunda samning við Keflavík en hans fyrsti samningur var árið 1994 þegar hann kom frá Víði í Garði en margir af ungu leikmönnunum sem spila með Keflavík í dag voru ekki fæddir þá. Hann var atvinnumaður í Englandi, Noregi og Svíþjóð á árunum 1998-2008 og á að baki 31 leik með landsliðum Íslands, U17 tveir leikir, U19 tíu leikir, U21 ellefu leikir og 8 leiki með A landsliðinu, 193 leiki á hann með Keflavík í deild og bikar og skorað í þeim 45 mörk. Hólmar er annar eins reynslubolti en hann var að gera sinn fimmta samning við Keflavík en einnig spilaði hann í atvinnumennskunni í Danmörku í tvö ár og með FH í þrjú ár. Bói eins og hann er kallaður á að baki 1 landsleik með U21, 204 leiki með Keflavík í deild og bikar og skorað í þeim 30 mörk en á einnig að 67 leiki með FH og skoraði 9 mörk og [...]