Nýjast á Local Suðurnes

Jóhann Birnir og Hólmar áfram hjá Keflavík

Knattspyrnudeild Keflavíkur hefur samið við fimm leikmenn, þrjá unga úr 2. flokki auk tveggja eldri. Þeir sem voru að endurnýja samning sinn við Keflavík eru þeir Jóhann Birnir Guðmundsson og Hólmar Örn Rúnarsson.

Jóhann á langan feril að baki og var að gera sinn níunda samning við Keflavík en hans fyrsti samningur var árið 1994 þegar hann kom frá Víði í Garði en margir af ungu leikmönnunum sem spila með Keflavík í dag voru ekki fæddir þá. Hann var atvinnumaður í Englandi, Noregi og Svíþjóð á árunum 1998-2008 og á að baki 31 leik með landsliðum Íslands, U17 tveir leikir, U19 tíu leikir, U21 ellefu leikir og 8 leiki með A landsliðinu, 193 leiki á hann með Keflavík í deild og bikar og skorað í þeim 45 mörk.

Hólmar er annar eins reynslubolti en hann var að gera sinn fimmta samning við Keflavík en einnig spilaði hann í atvinnumennskunni í Danmörku í tvö ár og með FH í þrjú ár.  Bói eins og hann er kallaður á að baki 1 landsleik með U21, 204 leiki með Keflavík í deild og bikar og skorað í þeim 30 mörk en á einnig að 67 leiki með FH og skoraði 9 mörk og varð með þeim  Íslandsmeistari árið 2012.

Ungu leikmennirnir heita Rúnar Þór Sigurgeirsson, Ingimundur Aron Guðnason og Adam Árni Róbertsson en allir spila þeir með 2. flokk. Ingimundur og Rúnar komu frá Víði í Garði árið 2011 en Adam kom til Keflavíkur 2016 en áður hafði hann spilað með sameiginlegu liði Keflavík/Njarðvik í 2. flokk, UMFL, Val Reyðarfirði og Reyni Sandgerði.