Jeppe með tvö í sjötta sigri Keflavíkur í röð
Jeppe Hansen skoraði tvö fyrstu mörk Keflavíkur og Sigurbergur Elísson það þriðja í 3-1 sigri Keflavíkur á HK á Nettóvellinum í Keflavík í kvöld.
Sigurinn í kvöld var sá sjötti í röð hjá Keflvíkingum sem eru í öðru sæti deildarinnar með 24 stig, stigi á eftir toppliði Fylkis.