Nýjast á Local Suðurnes

Jeppe Hansen semur við Keflavík

Knattspyrnumaðurinn Jeppe Hansen hefur skrifað undir tveggja ára samning við Keflavík og mun því leika með Keflvíkingum næstu tvö árin hið minnsta.

Jeppe er danskur ríkisborgari en kom hingað til lands 2014 þegar hann spilaði með Stjörnunni en hann gekk til liðs við KR-inga á síðasta sumri.  Hann hefur spilað 54 leiki í deild og bikar og skorað í þeim 19 mörk.

Það er mikill fengur að fá hann til liðs við okkur en það hefur vantað aðeins upp á markaskorun hjá liðinu undanfarið sumar, segir í tilkynningu frá Keflavík.