Ingunn Embla og Lilja Ósk skrifa undir samning við Grindavík
Lilja Ósk Sigmarsdóttir og Ingunn Embla Kristínardóttir hafa skrifað undir 2 ára samninga við körfuknattleiksdeild Grindavíku. Lilja er uppalinn Grindvíkingur og lék með Grindavík á síðasta tímabili en Ingunn hefur leikið með Keflavík allan sinn feril.
Ingunn er fædd árið 1995, er 170 cm á hæð og spilar stöðu bakvarðar. Hún var með rúm 8 stig að meðaltali í leik í fyrra og tók 4,5 fráköst.
Pétur Guðmundsson skrifaði einnig undir 2 ára samning um að aðstoða Daníel við þjálfun meistaraflokks kvenna.