Nýjast á Local Suðurnes

Íbúar geta komið sínum sjónarmiðum á framfæri varðandi uppbyggingu íþróttamannvirkja

Reykjanesbær í samstarfi við ráðgjafa hjá Capacent vinna að rýnivinnu um uppbyggingu íþróttamannvirkja og -svæða og innan skamms verður opnuð íbúagátt á vef Reykjanesbæjar þar sem að íbúum gefst tækifæri til að koma  sjónarmiðum sínum á framfæri er varðar íþróttamannvirki og -svæði í sveitarfélaginu.

Mikilvægt er að íþróttahreyfingin sendi hugmyndir sýnar til Capacent hið allra fyrsta, segir í fundargerð Íþrótta- og tómstundaráðs og er tekið fram að á þann máta er tryggt að hreyfingin og allir íbúar sem áhuga hafa á þessu málefni geti komið sínum sjónarmiðum á framfæri.