Nýjast á Local Suðurnes

ÍAV bauð lægst í undirbúningsvinnu vegna Suðurnesjalínu 2

Alls bárust sjö tilboð í gerð vegslóðar, jarðvinnu og undirstöður vegna byggingar Suðurnesjalínu 2, 220 kílóvolta háspennulínu frá Hraunhellu í Hafnarfirði að Rauðamel norðan Svartsengis.

Verkið felur í sér gerð nýrrar vegslóðar með línunni að hluta til, gerð hliðarslóða og vinnuplana við möstur, jarðvinnu vegna undirstaða og stagfesta ásamt efnisútvegun og framleiðslu undirstaða og stagfesta. Verkinu skal að fullu lokið fyrir septemberlok 2016 en línuleiðin er rúmir 32 kílómetrar og möstrin verða 100 talsins.


Lægsta boð tæplega 70 milljónum undir áætlun

Kostnaðaráætlun verksins hljóðar upp á tæplega 390 milljónir króna. Útboðið var auglýst í september og voru tilboðin sjö sem bárust í verkið opnuð á skrifstofu Landsnets s.l. þriðjudag. Íslenskir aðalverktakar eiga lægsta boðið, en eftirfarandi tilboð bárust:

-Íslenskir Aðalverktakar  319.974.416.

-LNS Saga 323.765.667.

-Ístak hf. 367.137.521.

-Urð og grjót ehf.  499.826.181.

-Borgarverk ehf. 510.678.686.

-Þjótandi ehf.  549.095.138

.-Ellert Skúlason ehf.  689.667.354.

– Kostnaðaráætlun  389.535.559.-