Nýjast á Local Suðurnes

Hummervoll snýr aftur í Pepsí-deildina – Leikur með ÍA í sumar

Norðmaðurinn Martin Hummervoll er genginn til liðs við ÍA. Hummervoll, sem er tvítugur sóknarmaður, lék með Keflavík seinni hluta sumarsins í fyrra í Pepsi-deildinni og lék þá 9 leiki og skoraði 3 mörk. Hummervoll þótti standa sig vel með Keflavík í fyrra, þrátt fyrir að hafa ekki verið í leikæfingu þegar hann kom til liðsins.

Martin kemur á láni frá Viking Stavanger. Gunnlaugur Jónsson þjálfari Skagamanna er afar ánægður með liðsstyrkinn. “Martin er góður sóknarmaður og verður góð viðbót við hópinn okkar.  Hann þekkir íslenskar aðstæður sem er kostur og við höfum fengið góð meðmæli með honum” segir Gunnlaugur.