Nýjast á Local Suðurnes

Hjólreiðakeppni um Reykjanesið

Laugardaginn 13. ágúst næstkomandi mun hjólreiðafélagið Bjartur standa fyrir móti í götuhjólreiðum um Reykjanes. Keppt verður í tveimur vegalengdum, 95 km og 160 km, en meðal annars verður hjólað um Vatnsleysustrandarveg, Grindavíkurveg og um Garðskaga.

Í tilkynningu frá Hjólreiðafélaginu Bjarti, sem stendur fyrir keppninni, segir að það sé von þeirra sem að þessu standa að íbúar og aðrir á svæðinu muni taka vel í þennan viðburð, en hugmyndin var að byrja smátt í ár og ef vel gangi, sé stefnan að gera þetta af föstum árlegum viðburði.

Í lok keppninnar verður svo haldin grillveisla við Ásvallarlaug, en þar verður einnig frítt í sund fyrir þátttakendur.

Skrá verður þátttöku fyrir 7. ágúst næstkomandi, en nánari upplýsingar um keppnina má finna á Facebook-síðu Bjarts.