Heppnir Grindvíkingar náðu stigi í Kópavogi
Breiðablik og Grindavík gerðu markalaust jafntefli í níundu umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu í kvöld. Grindvíkingar þurfa því að hinkra aðeins eftir næstu atlögu að toppsætinu, en liðið er í öðru sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir Valsmönnum.
Blikar voru sterkari aðilinn á Kópavogsvelli í kvöld, en með mikilli baráttu tókst Grindvíkingum að halda hreinu. Þeir áttu þó sín færi, þegar líða tók á leikinn, en brást bogalistin að þessu sinni.