sudurnes.net
Haukar völtuðu yfir Grindavík - Local Sudurnes
Stórleikur Helenu Sverrisdóttur var munurinn á liðum Hauka og Grindavíkur í þriðja undanúrslitaleik liðanna í kvöld, Helena skoraði 30 stig og tók 11 fráköst í leiknum sem Haukar unnu með 27 stiga mun, 72-45. Grindvíkingar héldu í við heimamenn í fyrsta leikhluta, en staðan að honum loknum var 14-10, Haukum í vil. Haukar voru mun sterkari í öðrum leikhluta og höfðu aukið forskot sitt í 35-18 að honum loknum. Síðari hálfleikur var svo á svipuðum nótum, Haukar héldu áfram að auka muninn, með Helenu í fararbroddi, og náðu á tímabili 32 stiga forystu 57-25 og ljóst að liðin myndu mætast á ný í Grindavík á föstudag. Lokatölur urðu svo 72-45. Whitney Michelle Frazier var at­kvæðamest í liði Grindavíkur með 13 stig. Meira frá SuðurnesjumKomnar á beinu brautina undir stjórn Sverris ÞórsGrindavík lagði Stjörnuna – Keflavík tapaði gegn HaukumGrindavíkurstúlkur í góðri stöðu eftir sigur á HaukumSkoruðu aðeins eitt stig í 1. leikhluta – Grindavík úr leik eftir ótrúlegan oddaleikKeflvíkingar komnir í sumarfríGrindavík lagði Hauka í spennuleikKeflvíkingar komnir í frí – Náðu sér aldrei á strik á SauðárkrókiGrindavíkurstúlkur komnar í bikarúrslitin – Keflavík úr leikGrindvíkingar halda toppsætinuGrindavík í undanúrslit Powerade-bikarsins eftir sigur á Haukum