sudurnes.net
Hannes Jón nýr þjálfari Reynis Sandgerði - Local Sudurnes
Hannes Jón Jónsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks karla hjá Reyni en samningur þess efnis var undirritaður á dögunum. Hannes hefur starfað sem aðstoðarþjálfari liðsins síðan í sumar, en tekur nú alfarið við stjórninni af Hafsteini R. Helgasyni sem þjálfað hefur liðið undanfarin tvö tímabil. Hannes hefur lokið UEFA A þjálfaragráðu og hefur víðtæka reynslu af þjálfun, bæði sem aðal- og aðstoðarþjálfari. Hann hefur meðal annars stýrt meistaraflokki RKV, Magna Grenivík og hefur starfað sem yfirþjálfari yngri flokka hjá Þór Akureyri. Í tilkynningu frá stjórn Knattspyrnudeildar Reynis kemur fram að þar á bæ séu menn ánægðir með ráðninguna og óskar stjórnin Hannesi velfarnaðar í störfum sínum fyrir félagið. Meira frá SuðurnesjumBrynjar Gestsson tekur við Þrótti Vogum – Á að efla uppeldis- og afreksstarfiðFriðrik Ingi aftur í Njarðvíkurnar2 deildin: Njarðvík á toppnum – Víðir í fimmta sætiDaníel Guðni Guðmundsson ráðinn til NjarðvíkurFall úr Pepsí-deild kemur við buddu Keflvíkinga – Á annan tug milljóna í tekjutapÞorvaldur þjálfar Keflavík næstu tvö árinHaraldur Freyr tekur við Reyni SandgerðiRay tekur við ReyniTommy Nielsen þjálfar Víði GarðiÚlfur Blandon tekur við Þrótti Vogum