sudurnes.net
Gunnar semur við Keflavík - Local Sudurnes
Körfuknattleiksmaðurinn Gunnar Ólafsson hefur samið við Keflvíkinga og mun leika með þeim á næsta tímabili. Gunnar er 24 ára framherji, sem síðustu 3 ár hefur leikið með St. Francis háskólanum í Bandaríkjunum. Frá þessu greinir Karfan.is. Áður en að Gunnar hélt út til náms lék hann síðast með Keflavík árið 2014, en þá skilaði hann 8 stigum og 3 fráköstum á 22 mínútum spiluðum að meðaltali í leik. Þá hefur Gunnar verið í kringum íslenska A landsliðið á síðustu árum, en í fyrra lék hann 5 leiki fyrir liðið. Meira frá SuðurnesjumÓlafur Ólafsson semur við Grindvíkinga á nýÞorvaldur Orri til NjarðvíkurDagur Kár Jónsson til GrindavíkurÞróttur Vogum semur við landsliðsmann frá FæreyjumMarkaskorarinn Marko gengur til liðs við KeflavíkGrindvíkingar semja við skotbakvörðUngir og efnilegir leikmenn semja við GrindavíkNjarðvíkursigur í Ásgarði – Mögnuð endurkoma Tyson-ThomasFjórir grunnskólar Reykjanesbæjar í úrslitum SkólahreystiArnór Ingvi skoraði sigurmarkið gegn St. Pölten