Nýjast á Local Suðurnes

Gunnar Einarsson ráðinn aðstoðarþjálfari Keflavíkur

Stjórn Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur og Gunnar Einarsson hafa gert með sér samkomulag um að Gunnar taki að sér að vera aðstoðarþjálfari hjá meistaraflokki karla út tímabilið.

Í tilkynningu frá Körfuknattleiksdeildinni kemur fram að Gunnar sé þekkt stærð í Keflavík og margfaldur Íslands- og bikarmeistari með félaginu, bæði sem leikmaður og einnig fyrirliði liðsins.