Nýjast á Local Suðurnes

Guðjón Árni framlengir við Keflavík – Tekur einnig þátt í þjálfun

Guðjón Árni Antoníusarson hefur framlengt samning sinn við Keflavík og spilar með þeim í Inkasso deildinni á næsta ári.

Guðjón hóf feril sinn með Keflavík árið 2002 og hefur síðan spilað 270 leiki með meistaraflokk, 233 með Keflavík og 37 með FH í deild og bikar og skorað í þeim 20 mörk. Þá var hann Íslandsmeistari með FH 2012 og Bikarmeistari með Keflavík 2004 og 2006.

Ásamt því að spila með Keflavík mun Guðjón sjá um þrek- og styrktarþjálfun leikmanna meistaraflokks karla. Það er mikill fengur að hafa Guðjón áfram hjá klúbbnum í þeirri baráttu sem er framundan að komast upp í deild þeirra bestu, segir í tilkynningu.