sudurnes.net
Grindvíkingar óheppnir gegn Haukum - Local Sudurnes
Grindvíkingar voru óheppnir að ná ekki að sigra Hauka þegar liðin áttust við í Grindavík í kvöld, lokatölur urðu 2-2, en Grindvíkingar voru 2-0 yfir í hálfleik en Haukar skoruðu jöfnunarmarkið á lokamínútu leiksins. Það voru þeir Jósef Kristinn Jósefsson og Axel Freyr Hilmarsson sem skoruðu mörk Grindvíkinga sem eru í 5. sæti deildarinnar með jafn mörg stig og Þór sem á leik til góða. Með sigri í kvöld hefðu Grindvíkingar blandað sér fyrir alvöru í toppbaráttuna. Meira frá SuðurnesjumHing-Glover afgreiddi KeflavíkÞróttarar lögðu Reyni í grannaslagGlæsimörk þegar Grindvíkingar lyftu sér upp í þriðja sætiðStojkovic skaut Víði á topp þriðju deildarinnarMissa leikmann ársins yfir til NjarðvíkurJafntefli hjá Grindavík og KA í hörkuleikSveindís allt í öllu þegar Wolfsburg tryggði sér sæti í undanúrslitumGrindvíkingar enn með í baráttunni um sæti í úrslitakeppninniSuðurnesjamenn sópuðu til sín viðurkenningum á lokahófi KKÍGrindavík á toppnum í kvennaboltanum