Nýjast á Local Suðurnes

Grindvíkingar lögðu Þórsara í Dominos-deildinni

Grindvíkingar unnu sinn fyrsta sigur í fjórum leikjum þegar þeir heimsóttu Þór á Þorlákshöfn í gærkvöld í lokaleik sjöundu umferðar Dominos deildar karla í körfuknattleik. Lokatölur urðu 74-84 og dugar það Grindvíkingum í fimmta sæti deildarinnar.

Leikurinn var kaflaskiptur en Grindvíkingar byrjuðu leikinn af krafti og komust í 4-14 en Þórsarar drógu á þegar líða fór á leikhlutann og voru tveimur stigum yfir í lok leikhlutans, 19-17. Annar leikhluti var jafn og spennandi en Grindvíkingar sigu framúr undir lok hálfleiksins 38-39.

Grindvíkingar héldu frumkvæðinu í þriðja leikhluta og virtust ætla að stinga af, náðu 9 stiga forystu, 51-60.  Heimamenn sóttu hart að gestunum í lokaleikhlutanum en Grindvíkingar héldu sjó og uppskáru sanngjarnan 10 stiga sigur, 74-84.

Eric Ju­li­an Wise skoraði 30 stig og tók ​8 frá­köst, Jón Axel Guðmunds­son skoraði 18 stig, tók ​4 frá­köst og átti ​8 stoðsend­ing­ar.