sudurnes.net
Grindavíkurstúlkur komnar í bikarúrslitin - Keflavík úr leik - Local Sudurnes
Grindavík er komið í úrslit Powerade-bikarsins eftir öruggan sigur á Stjörnunni, 77-57, í Mustad-höllinni í Grindavík í kvöld. Grindavíkurstúlkur byrjuðu vel og unnu fyrsta leikhlutann 23-15. Í öðrum leikhluta komu þær enn sterkari til leiks og var staðan í hálfleik 49-24. Í síðari hálfleik var þetta svo engin spurning þrátt fyrir að Stjörnustúlkur hafi aðeins náð að klóra í bakkann og lokatölur 77-57. Whitney Michelle Frazier skoraði 25 stig, Hrund SKúladóttir skoraði 15 og Ingunn Embla Kristínardóttir gerði 14 stig. Keflavíkurstúlkur aftur á móti úr leik eftir tap gegn Snæfelli, 64-74, þrátt fyrir að hafa komið mun sterkari til leiks í TM-Höllinni og verið yfir í leikhléi, 33-31. Snæfellingar reyndust svo vera sterkari í síðari hálfleik og höfðu tíu stiga sigur. Melissa Zorning var stigahæst í liði Keflavíkur með 21 stig. Meira frá SuðurnesjumGrindavík lagði Hauka í spennuleikDýrmæt stig í súginn hjá NjarðvíkingumKomnar á beinu brautina undir stjórn Sverris ÞórsGrindavíkurstúlkur í góðri stöðu eftir sigur á HaukumHaukar völtuðu yfir GrindavíkSkoruðu aðeins eitt stig í 1. leikhluta – Grindavík úr leik eftir ótrúlegan oddaleikNaumt tap hjá Njarðvíkingum í furðulegum spennuleikNjarðvíkingar í jólafríið í fallsætiSkoraði þrennu á sjö mínútumHnífjafnt í “Lemon Classico” – Haukur Helgi og Maggi Gunn átu á sig gat