sudurnes.net
Grindavík þokast nær Pepsí-deildinni eftir sigur á Keflavík - Local Sudurnes
Grindavík vann gríðarlega mikilvægan 1-0 sigur á grönnum sínum úr Keflavík í Inkasso-deildinni á Grindavíkurvelli í kvöld. Liðið er í öðru sæti deildarinnar, 31 stig, sex stigum meira en Keflavík sem er í þriðja sætinu eftir leiki kvöldsins. Fyrri hálfleikur var markalaus, en eina mark leiksins skoraði Gunnar Þorsteinsson á 70. mínútu með fallegu skoti í bláhornið, eftir sendingu frá Josiel Alves De Oliveira. Keflvíkingar létu markið fara í skapið á sér og létu ákvarðanir dómara leiksins fara í taugarnar á sér og uppskar nýr leikmaður Keflvíkinga, Mark McAusland meðal annars gult spald fyrir kjaftbrúk. Meira frá SuðurnesjumGrindavík í Pepsí-deildina – Sjálfsmark á lokamínútum varð Keflavík að falliGrindavík og Þróttur Vogum nýttu lokadaga félagaskiptagluggans velReynismenn töpuðu á AkranesiKeflavíkurstúlkur bikarmeistarar í 10. flokkiSigur hjá Grindavík en tap hjá Keflavík í kvennaboltanumArnór Ingvi skoraði í ÍslendingaslagGrindavík og Keflavík með góða sigra í úrslitum kvennaboltansGrindavík færist nær Pepsí-deildinni – Keflavík lagði HaukaKeflavík tryggði Pepsí-deildar sætiðArnór skoraði í jafntefli gegn Gautaborg – Sjáðu markið!