Nýjast á Local Suðurnes

Grindavík sá aldrei til sólar gegn meisturunum – Keflavík lagði Snæfell örugglega

Grindvíkingar töpuðu sínum fyrsta leik í Dominos-deildinni í körfuknattleik þegar liðið mætti KR-ingum í DHL-Höllinni í Vesturbæ Reykjavíkur. KR-ingar byrjuðu mun betur og lögðu þannig tóninn fyrir það sem koma skildi, Staðan að loknum fyrsta leikhluta var 28-12 fyr­ir Íslandsmeistarana og þegar fyrri hálfleik lauk var forskotið orðið 27 stig, 47-20 fyr­ir KR.

KR-ingar juku svo forskotið jafnt og þétt í síðari hálfleik, eða þangað til staðan var orðin þannig að þeir gátu sett unglingaliðið inná, sem kláraði leikinn. Lokastaðan 87-62. Cl­inch var stiga­hæst­ur hjá Grinda­vík með 23 stig.

Kefla­vík vann í kvöld ör­ugg­an sig­ur á Snæ­felli, þó það stendi í spennandi í spennandi leik miðað við fjörugan fyrri hálfleik. Keflavík leiddi með fimm stigum í leikhléi, 48-43, eftir að hafa verið undir eftir 1. leikhluta, 19-27.

Keflvíkingar héldu svo áfram þar sem frá var horfið og náðu Snæfellingar aldrei að hleypa almennilegri spennu í leikinn, öruggur 111-82 sigur hjá Keflvíkingum á heimavelli. Amin Stevens hefur heldur betur reynst Keflvíkingum vel, en hann var stiga­hæst­ur með 32 stig.