sudurnes.net
Grindavík og Njarðvík með sigra í kvöld - Local Sudurnes
Grindvíkingar og Njarðvíkingar sigruðu leiki sína í Dominos-deildinni í körfuknattleik í kvöld, Grindvíkingar léku gegn nýliðum Hattar í Grindavík en Njarðvíkingar heimsóttu Snæfell á Stykkishólm. Grindvíkingar byrjuðu illa gegn Hetti og voru sjö stigum undir eftir fyrsta leikhluta, 25-18. Þeir gulklæddu vöknuðu til lífsins þegar líða tók á hálfleikinn, þó svo að gestirnir gengu til búningsklefa í hálfleik með níu stiga forystu, 44-35. Grindvíkingar vöknuðu þó til lífsins í síðari hálfleik og um miðjan þriðja leikhluta voru þeir komnir með forystu, 49-47, enda var þriðji leikhlutinn algjörlega eign Grindvíkinga, sem unnu hann 22-9. Lokatölur urðu svo 86-74. Þrátt fyrir spár um slakt gengi í vetur hafa Njarðvíkingar unnið tvo fyrstu leiki sína í deildinni en þeir lögðu Hött eftir framlengingu í fyrstu umferð. Í kvöld gerðu Njarðvíkingar góða ferð á Stykkishólm þar sem þeir lögðu Snæfell 73-84, en eftir spennandi leik réðust úrslitin í 4. leikhluta þar sem Snæfellingar skoruðu einungis 4 stig gegn 15 stigum Njarðvíkinga. Meira frá SuðurnesjumSnæfell stöðvaði sigurgöngu Keflavíkurstúlkna – Njarðvík lagði HaukaAuðveldur sigur hjá Njarðvíkingum á SelfossiGrindavík í undanúrslit eftir sigur á SkallagrímiReynir vann KFS í markaleikGrindavík í annað sætið eftir jafntefli gegn FHKeflvíkingar lögðu Njarðvíkinga í LjónagryfjunniHeppnir Grindvíkingar náðu stigi í KópavogiTveir snarpir skjálftar fundust vel á ReykjanesiKeflavík og Grindavík töpuðuKeflvíkingar [...]