sudurnes.net
Grindavík lagði Hauka í spennuleik - Local Sudurnes
Það var frábær síðari hálfleikur sem kom Grindavíkurstúlkum yfir í einvíginu gegn Haukum, en fyrsti leikur liðanna fór fram í Hafnarfirði í kvöld. Grindvíkingar voru 14 stigum undir þegar flautað var til síðari hálfleiks, 37-23 og staðan ekki góða gegn sterku liði Hauka sem fyrir leikinn hafði aðeins tapað einum leik í deildarkeppninni á tímabilinu. Grindvíkinga hófu síðari hálfleikinn á gríðar sterkum varnarleik og söxuðu jafnt og þétt á forskot Hauka og komust yfir í fyrsta sinn í leiknum um miðjan fjórða leikhluta. Eftir það var leikurinn í járnum og eftir æsispennandi lokamínútur höfðu Grindavíkurstúlkur sigur, 58-61. Whitney Michelle Frazier átti flottan leik í kvöld og skoraði 24 stig fyrir Grindavíkurliðið, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir gerði 11. Meira frá SuðurnesjumGrindavíkurstúlkur í góðri stöðu eftir sigur á HaukumGrindavíkurstúlkur komnar í bikarúrslitin – Keflavík úr leikSkoruðu aðeins eitt stig í 1. leikhluta – Grindavík úr leik eftir ótrúlegan oddaleikKomnar á beinu brautina undir stjórn Sverris ÞórsGrindavík í undanúrslit eftir sigur á SkallagrímiHaukar völtuðu yfir GrindavíkGrindvíkingar lögðu Njarðvíkinga í LjónagryfjunniSlæmur dagur hjá Njarðvík og Grindavík í Dominos-deildinniKeflavíkurstúlkur með sigur í fyrsta mótsleik ársinsTap hjá Njarðvíkingum á Seltjarnarnesi